17.10.2007 01:33:18 / ingthorb

Tenerife :)



» 0 hafa sagt sína skoðun

05.07.2007 01:52:56 / ingthorb

Ingþór eignast alvöru myndavél



Þá loksins eitthvað gerist sem hægt er að segja frá en í gær lét ég verða að því að kaupa draumamyndavélina eftir að hafa spáð lengi og spekúlerað. Ætlaði fyrst að kaupa mér Canon 400D vélina (Digital Rebel Xti) en ákvað frekar að taka Canon 30D fyrst að þetta er nú gripur sem maður á eftir að eiga.

Ég viðurkenni það alveg að mér blöskraði þegar ég sá hvaða upphæð ég var að kvitta undir á kortanótunni, en þá er bara málið að vera duglegur að vinna áfram. Sumir eyða peningunum í áfengi, strippstaði eða flugelda þannig að... já...

Maður verður að byrja smátt og keypti ég ódýra linsu sem er mjög fín og ætla æfa mig fyrst á henni en síðan kannski í haust fæ ég mér einhverja góða linsu eins og paparazziarnir í Hollywood nota.

Skaut aðeins í gær og hérna eru nokkrar myndir sem eru samt ekkert merkilegar því ég á alveg eftir að læra á vélina og allar stillingar :)


















» 1 hafa sagt sína skoðun

12.05.2007 19:57:03 / ingthorb

Hello, ís it mista Ingolfsson?

Hversu skemmtilegt er Eurovision ef maður er farinn að blogga? - Lögin eru jafn spennandi og að hanga inn á bókasafni í 34°C hita og sól og lesa Brennu-Njálssögu.

Mjög skondið sem kom fyrir um daginn. Ég vaknaði kl. 8 og settist við tölvuna og byrjaði að vinna í þeim 23 verkefnum sem hanga á herðum mér. Skyndilega hringir þráðlausi farsíminn minn og er ekkert númmer.. bara Unknown (enska: þýðir Óþekkt)

Ég ákveð að svara og þá byrjar það "Jes, ís it mista Ingofson? - Þís is Yakó Hakimoto callin from eitthvað bla-enterprises an wanna know íf jú have konsider purschasing and make finance in the world stockmarketing thís wúd bí the ræt tæm to meik ínvestment..

Og síðan komst ég voða lítið að því hann spurði mig og þegar ég ætlaði að fara svara þá hélt hann áfram að tala "jor kompaní kúdd meik gúd profitt where bísnís is gróving möts today"

Síðan spyr hann mig um hvort ég sé með annan síma og ég segji "nei"

But dú jú hev a fax masín or öðer nömba æ ken ríts jú?

Síðan fer ég að hætta að vera hissa og fer aðeins að spyrja hann hvaðan hann hringir og hvað hann hét því ég var ekkert að hlusta á hann í byrjun þar sem ég fór að reyna meðtaka hreiminn sem var eins japanskur og gat verið.

Og jú, hann var að hringja frá Tókýó og Guð veit hvernig hann fékk símann minn.
Svo ég hringdi þá í Guð og spurði hann og þá spurði Guð mig: "Hvernig fékkst ÞÚ númmerið mitt?" :)

Enn síðan komst ég að soldlu með þennan japanska verðbréfasala að þetta er mjög líklega con-artist eða svindlari sem lætur fólk eða fyrirtæki fjárfesta og leggja inn pening í sjóð og síðan gerist ekkert og þú hringir til baka í númer sem er ekki til og heimilisfangið ekki til og þú situr uppi með sárt ennið, hehe..

En samt, alltaf gaman að fá símtöl frá fjarlægum löndum :)

Jæja, komið að Lettlandi... :)


» 1 hafa sagt sína skoðun

27.04.2007 21:19:40 / ingthorb

Kínamúrinn og Björgólfur Thor


Kannski komin tími til að blaðra því sem hefur rekið á fjörur mínar þótt það sé nú ekki mikið. Held það reki meira á fjörurnar við Langanes eða í Trékyllisvík þar sem sést ekki í fjöruna sjálfa fyrir drasli og sorpi. Held að flest að því drasli komi frá skipum sem hafa ekki efni á að kaupa ruslatunnur um borð, eða það heyrði ég einu sinni.

Enda held ég að ef sjómenn týni kreditkortinu sínu þá byrja þeir að fara í fjörurnar til að leita þegar þeir koma í land. Allt sem fer í sjóinn endar í sömu þremum fjörum á Íslandi..... og ef ekki þar þá finna þeir kortið sitt eflaust á Bóhem eða þeim fáu nektardansstöðum sem eftir eru... ekki það ég sakni þeirra staða en já... Árið 1997 voru nektardansstaðir aðalmálið í Reykjavík en 2007 er Samfylkingin, Ingibjörg Sólrún og bætri kjör aldraðra aðalmálið.... soldið merkileg þróun.

Ég er enn að reyna finna tíma til þess að fjarlægja Kínamúrinn minn úr gluggakistunni en sá múr er búinn til úr fjölda dósa... mest Malt og Appelsín og Sprite (ekkert Coke takið eftir) en svo fann ég gott ráð áðan. Ég einfaldlega opnaði gluggann og kom bara skarð í múrinn og flest af því datt beint ofan í ruslatunnuna... einfaldari gerast hreingerningar ekki

...og svo er bara að fara með þetta beint í endurvinnsluna og þá kannski maður verði ríkur... eða þannig byrjaði þetta hjá Björgólfi Thor... hann fann 3 dósir við Arnarhól, fór með í endurvinnsluna og síðan gerðist eitthvað í millitíðinni og í dag á hann einkaþotu og 91 árgerð af Citroen og hefur efni á að fara til tannlæknis á hverjum degi.

En best að halda áfram að vinna - Varð bara að blogga til að teygja á eftir ræktina... kýs að pikka á lyklaborðið frekar en að standa á einum fæti í teyjusalnum í 5 mín eins og götutrúður í Covent Carden, hehe... (ef þú veist ekki hvað Covent Carden er þá er kannski komi tími til að ferðast)

Lík þessu bloggávarpi mínu með nokkrum myndum úr verkefninu sem ég er núna í sem er ný vefsíða fyrir Smart sem verður öll í 3D með bílaumferð á götum og fólki og fleiru. Takk fyrir Apríl sem er að líða og gleðilegt nýtt Maí :)







» 1 hafa sagt sína skoðun

09.04.2007 01:20:50 / ingthorb

Ekki kjaftur í húsinu

Þá eru Páskarnir að verða búnir. Að mínu mati undarlegasta "hátiðin" á dagatalinu þar sem það eru heilir 5 dagar þar sem allt er lokað og ekkert að gera... þá notar maður tímann bara í að vinna upp það sem bíður manns.

En á skírdag gerðist soldið furðulegur atburður. Ég náði að fara í ræktina klukkutíma fyrir lokun og eftir það þá datt mér í hug hvað væri þægilegt að eiga bara svona laus lóð heima til að grípa í við og við.

Og þar sem ég er að keyra í Skeifunni þá datt mér strax í hug ein búð í Skeifunni sem selur svona lóð en samt ekki miklar líkur að það sé opið á skírdag - en, ég var í Skeifunni svo það sakar ekki að keyra fram hjá. Ég legg bílnum og jú - búðin var opin.

Ég geng inn og fer að skoða fjallahjól upp á 400.000 kr og annað sem kostaði 290.000 kall en tek þá eftir að það var ekki sála í búðinni, engin að afgreiða, engir viðskiptavinir, ekkert fólk, engar konur, engir menn, engir ísbirnir engar kýr og öll ljósin slökkt - bara ekki kjaftur í húsinu.

Ég geng að andyrinni og sé að lyklarnir eru í skránni - ég giskaði fyrst á að þeir væru að bjóða upp á sjálfsafgreiðslu yfir páskanna en síðan tók gáfaðri hluti heilans við og þá fattaði ég að það hafði gleymst að læsa búðinni.

Síðan gengur inn eitthvað úlenskt par, (giska á að þau hafi verið frönsk) og ég segji ósjálfrátt að við erum búnnað loka og þau fara út

(Hefði kannski átt að segja bara "m'excuser mais nous avons fermé la boutique"

Ég brenni heim í einum grænum, á Netið, á google og finn heimasíðuna hjá búðinni og farsímann hjá verslunarstjóranum og hringi í hann og segi honum tíðindinn.

Því næst bruna ég aftur niðrí Faxafen og ákveð að bíða eftir honum fyrir framan búðina og samt var fólk að koma á meðan og ætla inn.

Síðan kemur hann loksins eftir smátíma og var víst að koma alla leið úr Mosfellsbæ og var mjög feginn að þetta fattaðist því það hefði verið spurning um klukkutíma hvenær næstu hasshausar hefðu rápað þarna inn og mokað öllu út til að fjármagna næsta skamt enda bauðst verslunarstjórinn til þess að aðstoða mig bara strax en ég kunni ekki við það.

Nóg að hafa eytt 90 mínútum í að keyra frá Mosfellsbæ til Íslands svo óþarfi að taka meiri tíma frá manninum þannig að hann sagði þá að ég ætti bara kíkja eftir páska og þá myndi hann verðlauna mig rausnarlega, hehe...

En málið var að eigandinn hafði gleymt að læsa sinni eigin búð og engin þjófavörn í gangi.

En ég ætlast nú ekki til að hann fari að gefa mér lóðin ókeypis, frekar bara eitthvað smotterí - utanlandsferð eða siglingu um Karíbahafið :) - nei,nei segji svona

Jæja, ætla fara koma mér í háttinn - ólíkt öðru fólk sem stendur sótölvað í röðum á skemmtistöðum... eða skilda maður frekar eiga nota orðið öldurhús? :)

» 1 hafa sagt sína skoðun

04.04.2007 15:55:48 / ingthorb

Eru prestar ekki í lagi???



Ég get varla orða bundist yfir grein sem ég sá í Fréttablaðinu í morgun þar sem prestar eða einn prestur (man ekki hvort var) er brjálaðir yfir því að verið sé að halda keppnina um Fyndnasta mann Íslands á Föstudeginum Langa.

Akkuru geta þessir prestar og fólk sem trúir og sækir kirkju ekki virt það að það er ekki allt fólk eins.

Ekki fer ég í kirkju en annað fólk gerir það og allt gott með það. Ekki fer ég á hestbak og er á kafi í hestamennsku - annað fólk gerir það og allt í góðu með það - ekki fyrirlít ég það.

Það er til fólk sem vill hafa gaman yfir páskana. Í augum margra er þetta hátið til að minnast að 3.000.000 ár eru liðin síðan að Jesús fæddist í jötu.... aðrir borða páskaegg og síðan er fólk sem vill gera eitthvað um páskana til að stytta sér stundir þá daga þar sem allt er lokað og engin á ferð og liggur við að óhætt sé að tjalda í Ártúnsbrekkunni því engin er á ferð.

En þá vilja prestar banna að skemmtanahald sé leyft og að keppni þar sem fólk kemur saman til að hlæja, sé bannað... en það er allt í lagi að láta borgarbúa fá hjartaáfall klukkan 11 á sunnudagsmorgni hvern einasta dag ársins og vekja þá upp frá værum svefni með kirkjuklukkum... já nei það er ekkert siðlaust en að fólk dirfist að skemmta sér á heilögum degi og hlæja...

Mæli með því að prestar athugi að fólk er ólíkt... og þá á ég ekki við að fólk sé ólíkt með því að sumir kjósi að setjast hægra megin í kirkjunni og aðrir vinstra megin... meina ólíkt að öllu leyti.


» 0 hafa sagt sína skoðun

16.02.2007 20:07:16 / ingthorb

Stígamót og rauðsokkubeljur burt

Fréttamynd 421343Enn og aftur afsaka ég hveru langt líður á milli bloggfærsla en lítið fréttnæmt gerst.

Ég ætlaði að blögga eitthvað þegar Anna Níkólína Smith hrökk upp af en... nennti því ekki!
Síðan fór ég til London um síðustu helgi og kom heim á þriðjudaginn og ætlaði þá að skrifa smá ritgerð en... nennti því ekki!

Síðan núna þá bara varð ég að opna á mér rifuna núna. Eins og mörgum er kunnugt sem horfa á fréttir reglulega
þá mun einhver X-manna stór hópur fólks úr klámmyndageiranum koma hingað til Íslands til að halda einhverja ráðstefnu
(og smella af nokkrum myndum af nöktu kvennfólki.. allt í lagi með það... ekki eins og þeim takist að bræða snjóinn því það er engin snjór)


En.. rauðsokkur þessa lands og Stígamótabeljurnar eru brjálaðar og búnnað senda borgarstjóranum bréf til að taka þetta til umræðu OG HANN ÆTLAR AÐ GERA ÞAÐ!!!!!
Hvar er kalrmennskan hjá Viljálmi?????!!!!!!!!!

Ótrúlegt hvað þessar Stígamótakellingar eru bitrar yfir því að vera fertugar, einhleypar og vera jafn kynæsandi og Húnavatnssýslan í október.

En Hvað er í gangi!!!  Hversu lítið og ómerkilegt er Ísland ef klámmyndaframleiðendur meiga varla plana komu sína til Íslands og þetta er tekið fyrir á ÞINGI!!! og hjá borgarstjóra!!!!! Greinilegt að það er ekkert að gera hjá borgarstjórn og hversu illa lítur þetta út fyrir Ísland - þvílík sandkassaþjóð sem við erum....

Erlendar þjóðir hlæja af okkur og segja "hehe, they didn't handle the news of the porn industry people comming for a visit so the talked about it at the parliment and it was all over the media"

Síðan mætir í Ísland í dag einhver Bryndís Hlöðver.. svona ungpólitíkusagella sem er nýbúinn með Háskólann sem heldur að einhver hlusti á hana bara því hún mæti í rúllukragapeysu og bísnast og hneykslast á þessu (um stund þá minnti hún mig á hversu heppinn ég er að vera karlmaður)

... og hún sagði "klám er af hinu illa og klám er ofbeldi, klám er viðbjóðslegt, klám er viðurstyggilegt" og síðan er hún sjálf að fróa sér með víbrarann á kvöldin örugglega og á fullt af klámspólum í fataskápnum eins og 90% af konum sem eru að nálgast þrítugt

Í fyrsta lagi... ef Reykjavík vill vera eins mikil heimsborg og alþjóðleg og aðrar borgir þá verðum við að gera það ALLA LEIÐ eins og aðrar borgir, og sætta sig við það að þótt við séum eyja út í rassgati þá er flogið hingað 35 sinnum á dag frá Evrópu og Ameríku og við fáum allt shittið, hvort sem það er gott eða slæmt

Halda Íslendingar að við fáum allar bíómyndir strax í bíó og ný föt frá Ralph Lauren strax í búðir og að við sleppum við það slæma...

Við eigum bara leyfa klámframleiðendunum að halda sitt þing og bjóða þau velkomin, þetta er auðvitað venjulegt fólk eins og við nema því finnst skemmtilegra að vinna í klámi en að vera á kassa í Hagkaup (sem ég skil svosem) og við eigum ekki að láta fréttast að það þurfi svona lítið til að láta Íslendinga fara skjálfa á beinunum...

Við Íslendingar vorum gáfaðri á tímum Gísla Súrssonar og þegar við gegnum og sveitir og kveiktum í húsum og drekktum Hallgerði lanbrók í Öskju og allt þetta

... e maður á víst sína ættingja og vini hérna og svo myndi maður sakna hins háa matarverðs líka ef maður myndi flytja út, hehe...

En ég skora á fólk að reyna finna víkingablóðið í sér aftur og Klámþing á Íslandi....

skál fyrir því - Nóg komið í bili.



» 1 hafa sagt sína skoðun

22.01.2007 11:59:34 / ingthorb

Ár svínsins

Það er skuggalegur langur tími síðan ég bloggaði seinast þannig núna er nýársheitið mitt samkvæmt kínverska dagatalinu að blogga meira á Ári svínsins sem byrjar 18.feb nk. :)


Annars mjög lítið að frétta, jú Saddam sextugur og búið að hengja Ladda, annars allt voða rólegt. Reyni að vera búinn að þefa uppp eitthvað hneykslanlegt næst.
Hérna er tölvugerð mynd sem ég gerði í 3D og sýnir mann sem er búnnað bíða mjög lengi eftir að stefnumótið hans láti sjá sig :) Þangað til næst...




» 1 hafa sagt sína skoðun

11.12.2006 01:48:14 / ingthorb

Með tvær í takinu inn á klósetti


Já, það er ekki allir sem státa sig af þessu en ég var með tvær í takinu og með þær báðar inn á klósetti og yfirleitt er best að vera með þær inn á klósetti. Sko það byrjaði þannig að ég var búinn með eina og fleygð henni náttúrulega bara í burtu - í ruslið, ef maður er búinn með eina tekur maður bara nýja sko.

En ég var með enga í sigtinni og þá kom versta martröðin...sem var: "shit, verð að redda mér einhverju - bara möst - var að deyja sko"... svo ég sé þá eina sem var að vísu nýkomin út úr skápnum þannig að það bjargaði öllu.

En þegar ég var komin með þessa einu og allt var í gangi, kemur þá ekki á sama augabragði önnur.. þannig ég var komin með 2 í takinu.

Ég lét aðra vera á gólfinu meðan ég setti hina ofan á hana. Síðan losaði ég um skaftið og þar fékk önnur þeirra að dúsa meðan ég tók hina og kláraði hana gjörsamlega. Hún var mjög mjúk og soldið hvít og hálfgert lamb... enda með mynd að lambi á sér :)

Síðan þegar þetta var búið þá tók hugsaði hvað ég var feginn að hafa rekist á þessa sem kom út úr skápnum - svo ég ákvað að opna skápinn og gá betur hvort það væru fleiri en eina sem ég sá var handklæði.

Ég tek handklæðin í burtu og þá kom í ljós heilar 8 klósettrúllur til viðbótar... og
ég að panika með 2 rúllur og efast um þær séu nóg, hehe...

já, svona er þetta...

» 1 hafa sagt sína skoðun

23.11.2006 13:00:51 / ingthorb

Herbergistiltekt

Ég gerðist svo djarfur að taka til í herberginu mínu á dögunum og núna sést varla í herbergið fyrir hreinlæti en áður komst ég varla inn fyrir drasli og viðbjóði.
Rotturnar eru farnar og núna er ekkert í herberginu nema rúm, skrifborð, tölva, flatskjár og fartölvan - jú, bókahilla og fataskápurinn sem ég skipti í þrjá hluta, svört föt, mislit föt og bleikar skyrtur.

Svona leit herbergið út áður:



Núna er bara spurning hvort maður eigi að taka bílinn næst í gegn en löggan er farin að stoppa mig fyrir að vera á óeinkennismerktum sorpbíl, hehe

En svona lítur bílinn út í dag - ég held ég panti tíma í þrif hjá Jobba.



Já, þetta er ekki sniðugt, hehe - en fyrir auðtrúa fólk þá eru þetta myndir af Netinu bara.


» 3 hafa sagt sína skoðun

15.11.2006 03:50:23 / ingthorb

Afmælisblogg


Þá hefur afmælisdagurinn minn runnið sitt skeið. Ég vaknaði kl.9 í morgun og svo ánægður að ég ætti afmæli en síðan hætti ég að brosa skyndilega þegar ég fattaði hvað ég var gamall svo ég snéri mér út í horn og hélt áfram að sofa til hádegis.

Síðasta "tuttugu og eitthvað" afmælið :( en allaveganna... Brad Pitt og Tom Cruise eru nú soldið mikið eldri en ég og ekki eru þeir bad looking þannig að ennþá er von.
Ekki að ég sé að segja að ég sé jafn sætur og þeir - ég er sætari :) múhaha - ef þú ert ósammála því þá er góður augnlæknir í Domus Medica 3.hæð :)

En afmælisdagurinn var lauslátur... meina látlaus, hékk heima í tölvunni og naut þess að gera ekki neitt - hefði gert kannski eitthvað ef sumir hefðu ekki verið með 38 stiga hita :) - En um kvöldið fór ég síðan með pabba og Elínu út að éta á CSI Friday's og jat þar Johnny Cash Daniels hamborgara og síðan eftir það fórum við á "Mýkjuna", eftir Baltasalt Kornhák og kom hún á óvart.

Hún var bara mjög góð ólíkt öllum íslenskum bíómyndum en auðvitað vottaði fyrir sömu geðveikinni og eins og allar íslenskar myndir þá innihélt hún "gamla kellingu sem blótar" og "lögreglan kölluð til" og sjálfsvíg og svona... en bara mjög fín.

Jæja, ætla í háttinn - afmælisdagurinn búinn og sá næsti verður stórafmæli en þá fyrst mun ég drekka sorgum mínum og það einn á Kaffi Austurstræti eða Mónakó.

Bless í bili


» 1 hafa sagt sína skoðun

07.11.2006 16:11:23 / ingthorb

Tjörudropa-tilraunin Mikla



Loksins rak upp á fjörur mína eitthvað fyndið til að deila með ykkur og hér er soldið drepfyndið. Fyrir 79 árum síðan var gerð tilraun sem stendur enn þann dag í dag yfir og er þetta langsóttasta og ef ekki tilgangslausasta tilraun ever.

Árið 1927 gerði prófessor í eðlisfræði frá Brisbane-háskóla í Ástralíu, tilraun með hversu langan tíma það tekur tjörudropa að detta. Tjara er mjög seig ólíkt vatni sem dropar úr krana mörgum dropum á mínútu.

Parnell útbjó tæki sem er ekki ósvipað stundarglasi og setti slurk af tjoru í efra hylkið og gaf henni tíma til að sjatna og setjast niður - en það tók 3 ár. Því næst árið 1930 opnaði hann fyrir smá rifu svo að dropar gæti farið að leka niður úr tjörunni.

Frá árinu 1927 hafa einungis 8 dropar fallið úr tjörunni - spáið í því!!
Aðeins 8 dropar og tilraunin er enn í gangi þótt Thomas Parnell sé löngu fallinn frá og tilraunaglasið hefur verið vaktað í 79 ár því einhver þarf að telja ef dropi skildi falla.

Já, fólk ver líftíma sínum á ýmsan hátt - mjög spennandi að fylgjast með tjörudropa detta og loksins þegar það gerist þá er bara bíða í 11 ár eftir næsta :)


» 0 hafa sagt sína skoðun

24.10.2006 20:12:37 / ingthorb

Ertu með skilríki?


Ég afsaka þá tugþúsundir gesta sem heimsækja bloggið mitt hversu langt er síðan ég hef bloggað en ástæðan fyrir því er þríþætt, vegna aðstæðna, umsvifa og áhrifa.

En ég verð að segja frá því að ég kíkti á tjúttið á laugardaginn, fór í Þorlákshöfn á ball, held að Skítamórall hafi verið að spila en annars tók ég ekkert eftir því eða man það ekki, en skemmtilegasti parturinn við þennan laugardag var þegar ég fór í Vínbúðina í Kringlunni. - Ég var spurður um skilríki! ...og andlitið datt af mér með brothljóðum!

Ég bað konuna að giska hvað ég væri gamall og hún giskaði svona á öðru hvoru megin við tvítugt og skaut síðan á 20 ára. - ég brosti svo breitt að brosið rakst í hillurnar og braut nokkrar flöskur og þegar ég leit til vinstri rotaði ég gamlan mann með brosinu.

Ég sagði henni að ég væri tuttugu og ...já, sagði henni aldurinn minn og hún ætlaði ekki að trúa mér - vá, hvað ég var ánægður enda gekk ég út með þetta risabros og allir í Kringlunni haldið að ég væri hommi í fleiming-góðu skapi.

Spurning um að prófa taka strætó og nota 12 - 15 ára miða :)

» 0 hafa sagt sína skoðun

09.10.2006 21:30:05 / ingthorb

Slagsmál við King Kong á Prikinu




Jæja, loksins kom að því að ég fór drukkinn á djammið í miðbæ Reykjavíkur eftir fimm mánaða fjarveru en hingað til og í sumar hefur það allt átt sér stað á landsbygðinni eða í öðrum heimshlutum.

Þetta var frekar sveitt djamm og eins og svo oft áður var mesta fönnið áður en maður
fór niðrí bæ. Við Auðunn og einn strákur er Jósep heitir, sátum að éta bjór áður en við
fórum í bæinn og byrjaði rulglið í röðinni á Oliver þegar fjögur MILF fóru að saka okkur
um að vera að ryðjast í röðinni og segir ein druslan: "Hættið að ryðjast, fíflin ykkar"
Þá svörum við: "Við erum ekki að ryðjast, þið eruð bara fitna!"

Upp úr þessu verður einhver orðahasar þangað til ein stelpan segir við mig: "já og
vá hvað þú ert forljótur", ég hlæ mig máttlausan og segi: "þú ert bara horfa á sjálfa
þig speglast í augunum á mér" og þær urðu svo svektar og fara að kalla á dyraverðina og þá segjum við "dyraverðirnir heyra bara í sætum stelpum kalla"

Jæja, síðan kom frekar eðlilegur partur þangað til við kíkjum á Prikið þar sem
við hittum eitthvað lið við barinn niðri. Ég tók eftir að við barinn var klósett sem var
svona bæði fyrir stelpu og stráka og einn maður kemst þar fyrir í einu og voru 2 manneskjur að bíða svo ég stimpla mig sem þá þriðju í röðinni.

Ekki líður á löngu þangað til það koma nokkrar stelpur og ætla sér í röðina og ein þeirra
fer inn á undan mér og ég ætla grípa hurðina en hún lokar og e-h vinkona hennar kemur og segir "hún var sko á undan og síðan er ég og hún eftir henni"...

Áður en ég veit af er ég komin í handalögmál við einhverja spikfeita stelpu sem argar og hvæsir "ÉG VAR Á UNDAN ÓGEÐIÐ ÞITT" og ætlar að hjóla í mig og það er ekkert grín að vera 72 kg á móti 384 kg... ég reyni að halda henni frá mér svo hún nái ekki að snerta jakkafötin og segji "já, haltu áfram..., þér veitir ekki að fá smá hreyfingu"...

Hún segir þá "Ertu að segja ég sé feit??"
Ég segi: "ó, ég hélt þú værir ólétt"

Hún reynir að lemja og berja en ég held henni alltaf frá og hugsa hvað ég á að gera því ekki fer maður að berja stelpu þótt hún sé vel á þriðja hundrað kíló. Ég hef nú sótt nokkra box-tíma og ekki fer maður að kíla hana 2 högg og láta hana liggja í gólfinu - hvað gerir maður í svona stöðu... jú, halda áfam með orð sem særa...

"jæja, þeir bara kenna þér að slást í húsdýragarðinum?", segi ég og kalla til Auðunns," náðu mynd af King Kong!!"

"þú ert eins og New York... verður ekki skoðuð á einum degi"

"mér er óhætt að segja að ég hafi komist í feitt"

Fljótlega gefst hún upp og fer og kvartar í dyravörð sem kemur og talar við mig. Ég spyr hann að því að hvor er líklegri til að hafa átt upptökinn, feit stelpa sem líður illa útaf vaxarlaginu og lætur það bitna á öðrum eða ég.. hann lítur á mig og... "já, ég veit.." og fer í burtu.

Stuttu síðar lendir Auðunn í stelpu á barnum sem segir honum að færa sig því hún ætli að komast að til að kaupa bjór en hann var við barinn að tala við frænda sinn.

Síðan espist hún upp og kallar hann eitthvað, hann kallar hana eitthvað á móti, þangað til hún hrækir bjór framan í hann. Auðunn tekur þá stóran, stóran gúlp-sopa og svaraði á móti. Hún svaraði því með að hella úr glasinu yfir hann og smallaði síðan glasinu í gólfið og gekk í dyravörð sem kom með kúst og brosti til okkar.

Samt er eitt eftir... ég tek síðan eftir því fljótlega eftir einvígið við ófreskjuna að ég gat ekkert hreyft baugfingurinn á vinstri hendinni. Og við nánari athugun kom í ljós að ég hafði einhvern veginn slegið fingrunum, annað hvort í vegg eða í ófreskjuna og náð að fá svakalega bólgu... og núna er fingurinn fastur á ská og ég sama sem einhentur
í verð það í nokkra daga..... ekki beint gaman.. en ég fékk þó að berja King Kong augum þótt ég hafi ekki barið hann :)


» 2 hafa sagt sína skoðun

04.10.2006 11:53:04 / ingthorb

Norður-Kórea



Var að horfa á fréttirnar á NFS og ojjj bjakk!!... Nú er komin einhver remmi í N-Kóreu og þykjast þeir ætla að fara gera tilraunir með kjarnorkusprengju og hóta Bandaríkjunum öllu illu og saka þá um að fara illa með sig út af efnahagsbanni og væl væl...

Þessi fréttaþulur hérna að ofan sem er að hakka út úr sér einhverri herskárri gaddavírs-ræðu náði að hræða mig svolítið og burtséð frá því hvað er hægt að hlægja mikið að horfa á þetta video

Ég er sko búinn að horfa á þetta núna 18 sinnum í morgun og ætla núna út í sjoppu til að kaupa mér popp og kók óg horfa á þetta video nokkrum sinnum í viðbót :)

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 8
DJÚSÍ STUFF